Vel á annað hundrað foreldra og íbúa voru saman komin í Hamraskóla í kvöld til að kynna sér áform um sameiningu unglingadeilda í þremur grunnskólum. Á fundinn höfðu verið boðaðir fullrúar úr borgarkerfinu ásamt en foreldrar hafa ítrekað hafa reynt að fá svör við ýmsum spurningum sem brenna á þeim varðandi fyrirhugaða sameiningu og áhrif hennar á börnin okkar, Hamraskóla og hverfið.

Meðfylgjandi eru ályktanir fundarins í kvöld ásamt yfirlýsingu frá formanni foreldrafélagsins sem notaði tækifærið og sagði sig úr stýrihópi sem undirbúa á sameiningu skólans í safnskóla í Foldaskóla. Jafnframt fylgir með efni sem stuðst var við í þeim erindum sem flutt voru í kvöld á fundinum.

Fréttir í fjölmiðlum

Ef þú hefur áhuga á að taka þátt í starfi hópsins er þér bent á að fylla út þetta form

Nafn (Nauðsynlegt):

Netfang (nauðsynlegt):

Símanúmer (nauðsynlegt):

 Vil taka þátt í starfi hópsins

Skilaboð til hópsins:

Spamvörn:

1+1=? 

Deildu með öðrum!
  • Twitter
  • Facebook
  • email

 

Foreldrar í Grafarvogi óánægðir

On 18. janúar 2012, in Uncategorized, by admin

Óánægja er meðal margra foreldra nemenda í Hamraskóla og Húsaskóla í Grafarvogi með fyrirhugaðan flutning unglingastigs skólanna í Foldaskóla næsta haust.

Undirskriftalistar eru í gangi en foreldrar í Hamrahverfi hafa boðað borgarfulltrúa og embættismenn til fundar við sig í næstu viku til að fá skýrari svör um þessa sameiningu og hvaða ávinningi hún muni skila.

Hægt er að lesa fréttir um málið á, rúv.is, Vísi og á mbl.is.

Hópur foreldra sem hafa tekið saman höndum hafa boðið til opins fundar þar sem boðaðir hafa verið allir borgarfulltrúar og sviðsstjóri mennta og félagsmiðstöðvamála og verður fundurinn í Hamraskóla fimmtudaginn 26. jan kl. 19.30

Deildu með öðrum!
  • Twitter
  • Facebook
  • email

 

Aðalfundur Íbúasamtaka Grafarvogs

On 1. desember 2011, in Uncategorized, by admin

Aðalfundur Íbúasamtaka Grafarvogs verður haldinn 8. desember næstkomandi og verður fundurinn haldinn í Hlöðunni í Gufunesbæ. Fundurinn hefst klukkan 19.30.

Dagskrá verður samkvæmt lögum félagsins:

  • Skýrsla stjórnar um störf á liðnu ári skal lögð fram.

  • Endurskoðaðir reikningar fyrir liðið ár skulu lagðir fram til úrskurðar.
  • Tillögur að lagabreytingum skulu teknar fyrir. Tillögur um lagabreytingar þurfa að hafa borist stjórninni eigi síðar en tveimur vikum fyrir aðalfund og skal stjórn kynna þær á heimasíðu samtakanna ibuasamtok.com. Samþykki 2/3 fundarmanna þarf til að lagabreytingar nái fram að ganga.
  • Kosning stjórnar. Stjórnarkjör fer fram skv. 4 grein. Einfaldur meirihluti ræður úrslitum. Stjórnarmenn skulu kosnir til tveggja ára.
  • Skipa skal tvo skoðunnarmenn félagsins fyrir næsta ár.
  • Önnur mál.

Allir velkomnir

Deildu með öðrum!
  • Twitter
  • Facebook
  • email

 

Grafarvogur hafnar sameiningartillögum

On 12. mars 2011, in Fréttir, by admin

Ályktun fundar í Rimaskóla frá því í morgun:

Fundur foreldra leik- og grunnskólabarna í Grafarvogi, sem borgarstjóri og borgarfulltrúar Besta flokks og Samfylkingar boðuðu til þann 12. mars 2011, hafnar fyrirliggjandi tillögum um sameiningar í leik- og grunnskólum Grafarvogs. Þá átelur fundurinn vinnubrögð starfshóps undir forsæti Oddnýjar Sturludóttur og telur niðurstöðu starfshópsins órökstudda og illa ígrundaða. Fundarmenn telja að engan veginn sé sýnt fram á faglegan eða fjárhagslegan ávinning í tillögum starfshópsins. Einnig áréttar fundurinn að á meðan borgin sóar umtalsverðum fjármunum í ólögbundin gæluverkefni, séu ekki forsendur til frekari skerðinga í skólastarfi en orðnar eru.

Fundurinn hafnar alfarið tillögum starfshópsins um sameiningar skóla í Grafarvogi. Við krefjumst þess að Reykjavíkurborg forgangsraði fjármunum sínum í þágu lögbundinna verkefna, hætti gæluverkefnum og sýni ábyrgð í meðferð fjármuna að öllu leyti. Við viljum ekki frekari niðurskurð og höfnum öllum breytingum sem gerðar eru í andstöðu við skóla- og foreldrasamfélagið.

Deildu með öðrum!
  • Twitter
  • Facebook
  • email

 

Fundur um skólamál Grafarvogs

On 11. mars 2011, in Fréttir, by admin

Skólamál hafa verið mikið í umræðunni undanfarið og nú hafa umdeildar tillögur verið samþykkar í borgarstjórn um sameiningu leik- og grunnsskóla í borginni.  Í kjölfarið hefur borgarstjóri ákveðið að halda fundi í hverfum borgarinnar, fundurinn í Grafarvogi verða laugardaginn 12. mars klukkan 11 í Rimaskóla.

Grafarvogur

Sameiginleg yfirstjórn grunnskóla og frístundaheimila

Korpuskóli og Víkurskóli verði sameinaðir
Ein yfirstjórn frá hausti 2011. Nemendur í 8.-10. Bekk í Korpuskóla sæki áfram nám í Víkurskóla.

Borgarskóli og Engjaskóli verði sameinaðir
Ein yfirstjórn frá hausti 2011. Undirbúningur að auknu samstarfi eða sameiningu unglingadeilda verði hafið 2011-2012, stefnumótandi ákvörðun tekin 2012-1013.

Foldaskóli verði heildstæður safnskóli á unglingastigi fyrir nemendur úr Húsaskóla og Hamraskóla
Undirbúningur 2011-2012, stefnumótandi ákvörðun 2012-2013. Samhliða yrði rekstur Húsaskóla og Hamraskóla skoðaður með tilliti til betri nýtingu á húsnæði og hugsanlegrar sameiningar í stjórnum, eða sameininga við leikskóla í nágrenninu.

Foldaborg, Foldakot og Funaborg verði sameinaðir
Ein stjórn. 162 börn í sameinuðum leikskóla. Sameining árið 2011.

Hérna má svo lesa skýrsluna sem notuð var af Reykjavíkurborg til ákvörðunartöku: Greining tækifæra til samrekstrar og/eða sameiningarleikskóla, grunnskóla og frístundaheimila

Deildu með öðrum!
  • Twitter
  • Facebook
  • email

 

Nú líður senn að kosningum.

Við heyrum að fólk velkist í verulegum vafa um hvort eða hvaða flokka skuli kjósa. Fyrst og fremst talar fólk um að traustið sé brostið óháð flokkum. Menn sem í mörg ár hafa kosið sama flokkinn, hafa velt fyrir sér að kjósa ný framboð  til að láta í ljós óánægju sína.   En hverja skal kjósa og hvað fáum við í staðinn?

,,Djók ” eða nýjar áherslur?

Á síðustu vikum hafa komið fram ný framboð sem borgarbúar þekkja ekki og átta sig jafnvel  ekki á, því þau vita ekki alveg fyrir hvað þau standa.  Fólk spyr sig þó, hvort þarna séu á ferð  ábyrgðarfullir einstaklingar með stefnu byggða á visku og hugsjón eða hvort um sé að ræða ákveðna tegund stjórnleysingja, framboð sem byggt sé á ákveðinni tegund af mótmælum við ríkjandi ástandi,  háði eða ,,djóki”. Með það að markmiði  að hleypa kannski inn léttum vindum inn í umræðuna.

En kosningar um borgarstjórnarsæti Reykjavíkur er ekki  ,,djók”.   Þeir borgarbúar sem vilja taka ábyrgðarfulla upplýsta ákvörðun velta fyrir sér hvert framboðanna sé þess  trausts vert að taka við fjöreggi borgarinnar.

Til þess að stjórna borginni þarf frambjóðandinn fyrst og fremst að bera virðingu fyrir borgurunum, vera þekktur fyrir réttlæti, fórnfýsi, enga fyrirgreiðslupólitík og lausnarmiðaða framsýni.  En fyrst og síðast þarf hann að bera traust til íbúanna til að ná trausti þeirra. Því traust getur aldrei verið annað en gagnkvæmt.

Hvað skal kjósa?

Til að hjálpa Grafarvogsbúum til að mynda sér skoðun á stefnu flokkanna í okkar málum  sendi stjórn ÍG, flokkunum spurningar sem birtar eru í blaðinu.  Einnig buðu við öllum fulltrúum flokkanna  á opin íbúafund í Rimaskóla 20. maí, þar sem íbúar fá tækifæri að bera upp spurnigar.

Á þessum tímamótum er tíminn til að þakka fyrir það sem vel hefur verið gert á undanförnum árum, um von að það hafi farsælt framhald.  Þættir sem skipta miklu eru málefni er tengjast börnum okkar og ungmennum. Íþróttamál í okkar hverfi hafa vaxið fiskur um hrygg þó bæta megi þau enn frekar.  Öll stafsemi ÍTR er til fyrirmyndar. Kringum áramótin tók svo Vilhjálmur Vilhjálmsson skóflustungu af Menningarhúsinu og vonum við að þar verði ekki látið við sitja.

Á síðustu önnum virðist friður  hafa  haldist innan veggja borgarinnar.  Alla vega eins og það blasir við okkur.  Borgarstjóri hefur að vísu ekki verið mikið í framvarðalínunni heldur í skjóli flokksmanna sinna þegar á reynir.     Reikningar borgarinnar eru taldir í góðum málum. En…  Hvað segir það okkur meðan að fólkið okkar sveltur.  Er það eðlilegt í nútíma samfélagi að margra metra langar biðraðir myndist fyrir framan Fjölskylduhjálpina og fólk bíði þar  í öllum veðrum?  Hefði ekki verið hægt að skjóta yfir fólkið þaki  með að finna nýja aðstöðu þar sem fólk gæti beðið innandyra með börnin og gamla fólkið?  Er í lagi að státa af góðri afkomu borgarinnar  þegar börnin í hverfinu eiga ekki fyrir skólabókum?

Eiga borgarfulltrúar ekki að standa vörð um að auðlindir okkar eins og kalda vatnið, heita vatnið og sjá til þess að gufuvirkjanir verði áfram í okkar eigu?  Og standi þar með undir grundvallar tilgangi stofnunarinnar með að sjá okkur borgarbúum til framtíðar fyrir ódýrri orku og vatni til upphitunnar húsa og til vatnsafnota?  Viljum við að þetta gullegg okkar lendi í höndum óreiðumanna eða útlendinga sem líta á þessa auðlind fyrst og fremst sem arðbæra fjárfestingu ? Hér þarf að hafa hugrekki til að horfa til lengri tíma fremur  en með sjá glitta í skammtíma gróða.

Margt er það sem betur má fara í okkar hverfi. Í því sambandi þurfum við að fara yfir farinn veg og vil ég nefna nokkur þungavigtaratriði.

Spurningar hafa vaknað  hvað réttlætir tilverurétt Hverfaráðana og réttlætingu þess kostnaðar eins og verklagi þeirra hefur verið  háttað síðasta kjörtímabil.  Nú er ég ekki að gagnrýna fólkið sem situr í Hverfaráðunum.  Margir þeirra vinna fyrir laununum sínum, þó aðrir geri það ekki!  Ég vil með þessu  benda á það verklag og verkferlar sem viðhafðir eru geti okkur stafað veruleg ógn af eins og dæmin sanna.  Til að koma í veg fyrir misskilning þá tel ég veruleg tækifæri geti felist í hverfaráðum, EF þeim er skynsamlega stjórnað.

Eitt dæmalausasta mál sem kom upp á síðasta tímabili ,,Útsýnispallurinn” sem okkur var lofaður í 1.2. og Reykjavík. Gera átti gamla vatnstankinn á Hallsteinshöfða upp og laga umhverfið í kringum hann og útbúa laglegan útsýnispall. Þrátt fyrir nokkrar bókanir Hverfaráðsins og ítrekanir, þá var það var ekki efnt. Í stað loforða sem okkur voru gefin var  vatnstankurinn hreinlega brotinn niður í orðsins fyllstu merkingu.  Og ekkert hefur verið gert í staðinn til að bæta okkur brostin loforð né tjónið.

Okkur var aftur á móti greint frá endurskoðun og bættu verklagi í borginni.  Sem við höfum ekki orðið vör við að virki neit  frekar.

Annað skelfilega dæmið var sú ætlun borgarinnar að  flytja starfsemi Björgunnar yfir í Gufunes. Um árabil hefur íbúum Bryggjuhverfis staðið heilsufarsleg ógn og sjónmengun af starfseminni.  Þarna átti að létta af þeim álögunum með því að flytja starfsemi Björgunnar yfir til okkar, í Gufunesið í skjóli nætur.  Hefja þar uppfyllingar og eyðileggja fegurstu fjörur borgarinnar.  Þetta stóra mál koma aldrei á borð Hverfaráðs Grafarvogs og það var ekki  fyrr en eftir að fulltrúar íbúasamtakanna í Bryggjuhverfis vöruðu okkur við, að við í íbúasamtökunum okkar brugðumst við og komum í veg fyrir skelfilegt og óbætanlegt tjón.

Við viljum aðgengi að náttúruperlum hverfisins.

Íbúar hér í hverfinu eru mjög stoltir af umhverfi sínu því er synd að fegurstu fjörur sem við borgarbúar eigum  séu lokaðar af fyrir almenningi og innan girðingar sorphirðunnar þar sem þær safna rusli.  Eins er með Geldingarnesið sem er ein af okkar mörgu útivistar og náttúruperlum, þar sem fjöldi manns hefur notið þess að ganga sér til heilsubótar og ánægju.  Nú er búið að loka aðgengi fyrir bíla svo aðeins þeir sem eiga gott með að ganga geta komist á nesið   ekki fatlaðir,  ekki sjúklingar og ekki gamalt fólk sem á ekki auðvelt með gang.

Eina skýringu fengum við, að fólk væri að henda þarna rusli.  Þá er komið að ein einu málinu jafn kjánalegu.

Af hverju er gámastöð ekki  í Grafarvoginum?

Það má segja það dæmalaust á meðan að við hýsum tvær stæðstu sorphirðustöðvar landsins þá höfum við íbúar Grafarvogs ekki aðgengi að gámastöð innan hverfisins. Við þurfum að KEYRA draslið út úr hverfinu, til að því sé ekið inn til sorphirðustöðvanna, þaðan sem því er síðan ekið aftur út úr hverfinu til urðunnar.  Við viljum gámastöð í hverfið, við viljum einnig að borgin standi vörð um alla þá lámarksþjónustu sem við teljum að skuli vera í eins fjölmennu hverfi og Grafarvogurinn er  s.s.  banka, ÁTVR og lögreglu.

Hér hefur aðeins verið drepið á nokkur atriði sem koma okkur við hér í okkar hverfi. Margir eru óhressir með stöðu mála bæði hjá borg og ríki.   Við viljum benda íbúum á að kynna sér bæði svör flokkanna í blaðinu við spurningum.  Einnig er fróðlegt að skoða loforð flokkanna frá því fyrir síðustu kosningar á heimasíðu Grafarvogsblaðsins á http://issuu.com/skrautas/docs/gv-2006-5?mode=a_p.

Verum virk kynnum okkur stefnumál flokkanna og kjósum ábyrgt fólk til framtíðar og okkur til farsældar.

Elísabet Gísladóttir form ÍG

Deildu með öðrum!
  • Twitter
  • Facebook
  • email

 

Ábyrgðin er í okkar höndum

On 8. maí 2010, in Uncategorized, by admin

Opinn íbúafundur með fulltrúum allra flokka sem bjóða fram til borgarstjórnar verður haldinn í Rimaskóla fimmtudaginn 20. maí, kl. 20:00.

Dagskrá:

  • Flokkarnir átta sem bjóða fram fá 5 mín til að kynna stefnu sína.
  • Frambjóðendur í pallborði, svara spurningum íbúa.
    • Hverjar eru áherslurnar í málefnum okkar hverfis ?

    • Hverjar eru lausnir flokkanna í krefjandi vandamálum borgarinnar ?

Fjölmennum á fundinn, verum virk og tökum ábyrga upplýsta ákvörðun um val í kosningunum í vor.

Allir velkomnir.

Stjórn Íbúasamtaka Grafarvogs.

Deildu með öðrum!
  • Twitter
  • Facebook
  • email

 

Ný stjórn íbúasamtakanna

On 18. mars 2010, in Uncategorized, by admin

Stjórn Íbúasamtaka Grafarvogs 18. mars 2010

ER EITTHVÐAÐ SEM ÞÚ TELUR BETUR MEGI FARA Í HVERFINU OKKAR?

Við hvetjum ykkur öll til að vera virk og taka þátt í öllum ákvörðunum um allt er varðar nærumhverfi okkar. Hafið samband!

ibuasamtok@ibuasamtok.com

Elísabet Gísladóttir. Formaður: gsm: 824-8830 elisabet@ibuasamtok.com
Halla B. Þorkesson
Guðrún Indriðadóttir
sr. Guðrún Karlsdóttir
Tómas Hafliðason
Jón V. Gíslason
Guðjón Ýmir Lárusson

Varamenn:
Regína Þorvaldsdóttir
Anna Kristin Sigurbjörnsdóttir

Skoðurnnarmenn reikninga
Loftur Sigurðsson
Bjarni Grímsson

Deildu með öðrum!
  • Twitter
  • Facebook
  • email

 

Aðalfundur íbúasamtaka Grafarvogs

On 8. nóvember 2009, in Uncategorized, by admin

Aðalfundur Íbúasamtaka Grafarvogs 24. nóvember 2009. Í hlöðunni í Gufunesi fundurinn hefst kl. 20:00

Dagskrá:
(1) Venjuleg aðalfundarstörf.

(2) Yfirlit yfir störf Skipulags- og umferðarhóps, Skólahóps, Umhverfis- og menningarhóps.

(3) Ávarp. Júlíus Vífill Ingvarsson, formaður Skipulagsráðs Reykjavíkur. Skipulag hverfisins, staða mála, stefna og áherslur.

(4) Aðalerindi. Atli Steinn Árnason forstöðumaður ÍTR, Nýjar hugmyndir að skipulagi og nýtingu á Gufunessvæðinu.

(5) Karl Hreinsson formaður Hverfaráðs stýrir umræðum

Fundurinn er öllum opinn og eru íbúar hvattir til að fjölmenna!
Framboð og tilnefningar til stjórnarsetu skulu berast stjórn ÍG að minnsta kosti viku fyrir aðalfund á netfangið elisabet@ibuasamtok.com.

Fundurinn er öllum opinn og eru íbúar hvattir til að fjölmenna!

Stjórn ÍG

Deildu með öðrum!
  • Twitter
  • Facebook
  • email

 

Tilnefningar

On 8. ágúst 2009, in Uncategorized, by admin

Við leitum eftir tilnefningum um: lóðir sérbýla, fjölbýla og fyrirtækja sem þykja til fyrirmyndar í hverfinu.
Sendið inn ykkar val á ibuasamtok@ibuasamtok.com

Deildu með öðrum!
  • Twitter
  • Facebook
  • email