Aðalfundur Íbúasamtaka Grafarvogs verður haldinn 8. desember næstkomandi og verður fundurinn haldinn í Hlöðunni í Gufunesbæ. Fundurinn hefst klukkan 19.30.
Dagskrá verður samkvæmt lögum félagsins:
- Skýrsla stjórnar um störf á liðnu ári skal lögð fram.
- Endurskoðaðir reikningar fyrir liðið ár skulu lagðir fram til úrskurðar.
- Tillögur að lagabreytingum skulu teknar fyrir. Tillögur um lagabreytingar þurfa að hafa borist stjórninni eigi síðar en tveimur vikum fyrir aðalfund og skal stjórn kynna þær á heimasíðu samtakanna ibuasamtok.com. Samþykki 2/3 fundarmanna þarf til að lagabreytingar nái fram að ganga.
- Kosning stjórnar. Stjórnarkjör fer fram skv. 4 grein. Einfaldur meirihluti ræður úrslitum. Stjórnarmenn skulu kosnir til tveggja ára.
- Skipa skal tvo skoðunnarmenn félagsins fyrir næsta ár.
- Önnur mál.
Allir velkomnir
Slóð á þessa færslu: http://is.gd/orJMFf



















