Í morgun afhentu fulltrúar foreldra í Hamraskóla og Húsaskóla menntamálaráðherra, Katrínu Jakobsdóttur, ákall um aðkomu ráðuneytisins að sameiningarmálum í sunnanverðum Grafarvogi en færa á unglingadeildir beggja skóla í safnskóla í Foldaskóla.
Foreldrarnir óska eftir því að ráðherra nýti matsleiðir og úttektarheimildir sínar til að fylgjast með áætlunum um og framkvæmd sameiningarinnar. Þá er jafnframt óskað eftir því að ráðuneytið taki efnislega afstöðu til erindisins og leitist til að svara ýmsum lögfræðilegum álitamálum sem foreldrarnir telja til staðar varðandi sameiningu skólanna.
Yfirgnæfandi meirihluti foreldra í Hamraskóla og Húsaskóla er á móti sameiningunni og telur að hag barna sinna sé betur borgið í sínum skóla í eigin hverfi. Þá telja foreldrar sameiningin muni hvorki skila fjárhagslegum, né faglegum ávinningi. Foreldrar hafa ítrekað reynt að koma sjónarmiðum sínum á framfæri við fulltrúa meirihluta borgarstjórnar Reykjavíkur en með litlum árangri.
Í áliti menntamálaráðherra til borgarstjóra um sameiningar grunnskóla í Reykjavík frá því í mars 2011 kemur fram að þó að tillögurnar stangist strangt til tekið ekki á við lög eða anda þeirra séu þær varhugaverðar vegna umfangs þeirra. Bent er á mikilvægi þess að tekið sé tillit til umsagna skólaráða og annarra fagaðila og málið unnið í sem bestri samvinnu við skólasamfélagið. Þá er lagt til að breytingarnar séu innleiddar í ákveðnum skrefum á lengri tíma þar sem þær kunni að leiða til umróts í skólasamfélaginu. Í álitinu eru sett fram ýmis varnaðarorð og ábendingar um vinnulag og framkvæmd fyrirhugaðra sameininga, fari svo að Reykjavíkurborg ákveði þrátt fyrir varnaðarorð ráðuneytsins að hrinda tillögunum í framkvæmd.
Það er álit foreldra að fulltrúar meirihlutans í borgarstjórn taki ekki tillit til ábendinga og athugasemda menntamálaráðherra og ætli sér að knýja fram sameininguna í óþökk hagsmunaaðila. Þeir benda t.d. á að þrátt fyrir að skólaráð bæði Hamra- og Húsaskóla hafi hafnað sameiningunni á sínum tíma hafi það engin áhrif haft á framgang málsins. Því hafi þeir ekki annan kost í stöðunni en að leita á náðir ráðherra.
Meðfylgjandi er ákall foreldra til menntamálaráðherra ásamt fylgiskjalinu fundir í tímaröð (sem er samantekt á umfjöllun borgaryfirvalda um málið). Þá fylgir með lögfræðiálit þar sem fjallað er um þau lögfræðilegu álitamál sem foreldrar telja að varði sameininguna. Jafnframt er fylgir með mynd af fulltrúum foreldra á leið á fund menntamálaráðherra í morgunn.
Borgarfulltrúarnir Oddný Sturludóttir, Óttarr Proppé og Eva Einarsdóttir, ásamt starfsfólki borgarinnar á skóla‐ og frístundasviði og framkvæmda‐ og eignasviði, munu fara yfir stöðuna í undirbúningsvinnunni og svara fyrirspurnum. Upplýsingafundur um breytingar á skólastarfi í Húsaskóla verður haldinn
miðvikudaginn, 15. febrúar klukkan 20:00 í Húsaskóla.
Stjórn Íbúasamtaka Grafarvogs skorar á fulltrúa Skóla- og frístundaráðs áður Menntaráðs Reykjavíkurborgar að taka fullt tillit til afstöðu foreldra, nemenda og íbúa hverfa Grafarvogs um málefni er varða sameiningu unglingadeilda Hamraskóla og Húsaskóla til Foldaskóla.
Stjórn íbúasamtakanna krefst þess af borgarfulltrúum að þeir standi við loforð um samráð og íbúalýðræði og endurskoði fyrri ákvarðanir á grundvelli hagsmuna íbúa og nemenda. Stjórn íbúasamtakanna gerir þá kröfu til borgarfulltrúa að þeir leggi fram ítarleg og fullnægjandi gögn sem styðja sameiningu unglingadeildanna, gögn sem sýna fram á að ekki sé verið að fórna meiri hagsmunum fyrir minni.
Í framhaldi af málefnalegum foreldra- og íbúafundum í hverfum Grafarvogs að undanförnu, ályktunum og yfirlýsingum hagsmunaaðila, bendum við á mikilvægi þess að ákvarðanir og stjórnun skólamála í hverfum Grafarvogs sé í sátt við nemendur, foreldra, íbúa og stjórnendur og ekki sé ráðist í breytingar sem ekki næst breið samstaða um.
Íbúasamtök Grafarvogs hvetja borgarfulltrúa og aðra hagsmunaaðila til þess að kynna sér forsendur og gögn varðandi fyrirhugaða sameiningu á vef íbúasamtakanna www.ibuasamtok.com og taka samfélagslega ábyrgð á þessu mikilvæga málefni er varða alla íbúa Grafarvogs og annarra íbúa borgarinnar. Það er krafa stjórnar íbúasamtakanna til allra hagsmunaaðila að þeir standi vörð um það dýrmætasta sem býr í Grafarvogi, unga fólkið.
Stjórn Íbúasamtaka Grafarvogs.
Opinn fundur íbúa Húsahverfis um fyrirhugaðar breytingar á skólastarfi í Húsaskóla og áhrif þeirra á lífsgæði var haldinn í gær. Fundurinn var opinn öllum íbúum hverfisins og öðrum sem vildu láta sig málefni þess varða. Vel var mætt á fundinn og voru fjörugar umræður á fundinum.
Í lok fundarins voru samþykkt ályktun sem er meðfylgjandi.
Opinn fundur íbúa Húsahverfis um fyrirhugaðar breytingar á skólastarfi í Húsaskóla og áhrif þeirra á lífsgæði í hverfinu okkar verður haldinn fimmtudaginn 9. febrúar nk. Klukkan 20:00 í Húsaskóla. Fundurinn er opinn öllum íbúum hverfisins og öðrum sem vilja láta sig málefni þess varða.
Fundur er í borgarstjórn á morgun kl. 14.00 og er annað mál á dagskrá (sennilega nær kl. 15.00) umræða um ,,sameiningarmál á skóla- og frístundasviði“. Nokkrir foreldrar hafa tekið sig saman og ætla að mæta og hvetja fólk til að mæta einnig á pallana í þögul mótmæli.
Foreldrarnir eru með frekari plön um aðgerðir til að koma í veg fyrir sameiningu og fá raunverulega umræðu um kosti og galla sameininganna.
Ef þú hefur áhuga á að taka þátt í starfi foreldranna er þér bent á að fylla út þetta form:
Mbl.is fjallar um hitafundinn sem var haldinn í kvöld í Hamraskóla með borgarfulltrúum og foreldrum. Í frétt mbl.is segir meðal annars:
„Fyrir fundinn hafði einn fulltrúi foreldra í stýrihóp um sameininguna sagt sig úr hópnum en á fundinum sagði annað foreldri, formaður foreldrafélags Húsaskóla, þaðan sem einnig á að flytja unglingadeildina yfir í Foldaskóla, sig einnig úr stýrihópnum.
Miklar efasemdir komu fram á fundinum um fjárhagslegan og faglegan ávinning af sameiningunni en fundarmenn töldu m.a. að illa hefði verið staðið að undirbúningsvinnu og lítið samráð haft við foreldra og íbúa hverfisins.“
Var það samdóma álit foreldra sem voru á fundinum að fátt hefði verið um svör á fundinum annað en að keyra ætti sameinunga áfram án þess að taka tillit til ábendinga foreldra. Barátta foreldra gegn sameingunni mun því halda áfram.
Ályktun foreldra frá fundinum er að finna hérna
Fréttir af málinu
- Segja engin rök með sameiningu – rúv
- Mikil reiði vegna sameiningar – mbl.is
- Mikil óánægja hjá foreldrum barna í Hamraskóla – vísir.is
- Kjartan Magnússon: Breytingar á skólahaldi – mbl.is


