Hagsmunamál

Íbúasamtök Grafarvogs eru hagsmunasamtök íbúa. Meðal þeirra málaflokka sem samtökin hafa beit sér fyrir eru:

Mál sem vöktuð er í dag:

Björgun.

Samtökin taka ekki í mál undir neinum kringumstæðum að starfsemi Björgunar flytji í Gufunes.  Sú mengun sem fylgir starfseminni og sú sjómengun sem Bryggjuhverfisbúar hafa orðið fyrir, um árabil, viljum við Grafarvogsbúar finna aðra og farsæla lausn á aðra en að dæma íbúa Grafarvogs til að þola hana næstu tugi ára, með öllum þeim vanda og vanlíðan sem af starfsemi Björgunar hlíst í friðsælli íbúabyggð.  Við skiljum ekki rök fyrir að flytja starfsemi sem þessa um nokkra tugi metra til að fría eina íbúabyggð til að valda annarri kvöl?

Hallsvegurinn.

Íbúar við Hallsveg hafa frá árinu 1989 barist fyrir að Hallsvegur verði ekki hraðbraut í gegnum hverfið sem klífur það í tvennt.  Íbúasamtökin hafa gengið inn í þeirra baráttu og hafa komið nokkru til leiðar.  Enn er þó barist á móti því að Hallvegur verði að kröfu Korputorgs hluti stofnbrautar hringvegarins sem verði lagður í gegnum hverfið og höggvi það niður í herðar niður með  ófyrirsjáanlegum afleiðingum.   Samráðshópur um Hallsveg hefur nýlokið störfum. Það sem aðalniðurstöður eru að ekki verðir farið í framkvæmd á Hallsvegi fyrr en niðurstaða um legu Sundabrautar liggur fyrir.

Sundabrautin.

Fulltrúar íbúasamtakanna eiga fulltrúa í samráðshóp um Sundabraut.  Eina skynsama niðurstaðan um legu Sundabrautar er að hún verði lögð í göng.  Minnst áreiti minnst sjónmengun.

Skipulagsmál hverfisins.

Markmið skoðanna samtakanna í skipulagsmálum ræðst að lýðheilsu og velferð   íbúanna í öllum tilfellum.  Við erum umhverfisvæn og leggjum mikið uppúr náttúrulegri, umhverfisvænni lýðheilsu íbúanna.  Aukið verði vægi grænna svæði í hverfinu.

Menningarstörf sem tengjast hverfinu

*Vernun sögu hverfisins frá upphafi landnáms.

*Sett upp skilti um sögu hverar þeirra fimm jarða sem Grafarvogshverfið nær yfir.

Náttúruvernd.

*Verndun fjaranna í Grafarvogi.

*Gróðursetning trjágróðurs með öðrum samtökum.

Fulltrúar Íbúasamtakanna voru frumkvöðlar og sjáu að miklum hluta til um skipulag og kynningu:

Grafarvogsdeginum  frá 1998

Þrettándagleðinni frá 1999

Þessum skemmtunum hafa náð sessi í hverfinu og þykja nú ómissandi þáttur.

Deildu með öðrum!
  • Twitter
  • Facebook
  • email
Slóð á þessa færslu: http://is.gd/vUVWXQ