LÖG

LÖG ÍBÚASAMTAKA GRAFARVOGS

tillaga að breytingu á lögum

1. grein

Félagið heitir Íbúasamtök Garfarvogs, skammstafað ÍG. Heimili þess og varnarþing er í Reykjavík. Félagssvæði er Grafarvogshverfið.

2. grein

Tilgangur félagsins er:

  • a. Að vera samstarfsvettvangur íbúa og félagasamtaka á félagssvæðinu
  • b. Að vinna að framfara- og hagsmunamálum í hverfunum í Grafarvogi.
  • c. Að stuðla að samhug innan svæðisins.
  • d. Að byggja upp samstarf við opinberar stofnanir sem hafa með málefni hverfisins að gera, og önnur íbúasamtök.

3. grein

Allir íbúar  hverfisins sem þar eiga lögheimili, teljast félagar. Kjörgengi hafa allir lögskráðir íbúar svæðisins 18 ára og eldri.

4. grein

Breytingartillaga

Stjórn ÍG skal skipuð 7 aðalmönnum, formanni, varaformanni, ritara, gjaldkera,  2 meðstjórnendum og  2 varamönnum.

Formaður félagsins er fulltrúi þess og félagsstjórnar út á við. Hann kveður til stjórnarfunda þegar þurfa þykir.

Auglýsa skal eftir framboðum og tilnefningum til stjórnarsetu í aðalfundarboði. Framboð og samþykktar tilnefningar skulu berast stjórn ÍG að minnsta kosti viku fyrir aðalfund. Frambjóðendum skal heimilt að kynna sig í stuttu máli á aðalfundinum áður en gengið er til kosningar. Kosning fer fram á aðalfundi þar sem einfaldur meirihluti ræður. Hljóti frambjóðendur jafnan fjölda atkvæða skal hlutkesti ráða því hver nær kjöri.

5. grein

Aðalfund skal halda árlega, að hausti, á tímabilinu frá 1. september til 1. desember. Skal hann boðaður með a.m.k. viku fyrirvara í a.m.k. einu blaði sem borið er í öll hús á svæðinu, ásamt því að vera auglýstur á heimasíðu samtakanna og telst fundarboðunin þá lögleg.

6. grein

Dagskrá aðalfundar.

  • • Skýrsla stjórnar um störf á liðnu ári skal lögð fram.
  • • Endurskoðaðir reikningar fyrir liðið ár skulu lagðir fram til úrskurðar.
  • • Tillögur að lagabreytingum skulu teknar fyrir. Tillögur um lagabreytingar þurfa að hafa borist stjórninni eigi síðar en tveimur vikum fyrir aðalfund og skal stjórn kynna þær á heimasíðu samtakanna ibuasamtok.com. Samþykki 2/3 fundarmanna þarf til að lagabreytingar nái fram að ganga.
  • • Kosning stjórnar. Stjórnarkjör fer fram skv. 4 grein. Einfaldur meirihluti ræður úrslitum. Stjórnarmenn skulu kosnir til tveggja ára.
  • • Skipa skal tvo skoðunnarmenn félagsins fyrir næsta ár.
  • • Önnur mál.

7. grein

Stjórn er heimilt að stofna nefndir á hverjum tíma eftir því sem þörf krefur. Nefndir skulu hafa fullt samráð við stjórnina um mál er varða samtökin. Stjórn tilnefnir fulltrúa og varafulltrúa í Hverfisráð Grafarvogs.

8. grein

Stjórnin skal boða til almenns félagsfundar ef ákveðnar óskir, studdar að a.m.k. 20 félagsmönnum koma fram þar að lútandi og skal sá fundur auglýstur og boðaður eins og um aðalfund væri að ræða. Stjórn getur boðað til málfunda um tiltekin málefni og nægir þá boðun með netpósti til skráðra félaga og auglýsing á heimasíðu, hvort tveggja með a.m.k. viku fyrirvara.

9. grein

Hætti samtökin störfum renna eignir samtakanna til æskulýðsmála í hverfinu.

Deildu með öðrum!
  • Twitter
  • Facebook
  • email
Slóð á þessa færslu: http://is.gd/jvOxLb